Aðalfundurinn er í kvöld og allir almennir félagar eru hvattir til að mæta. Þetta er stuttur fundur og afar áhugavert að sjá hvað um er að vera í félaginu okkar.
Nýja stjórnin er sérstaklega hvött til að láta sjá sig.
Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Hauka verður haldinn fimmtudaginn 16. febrúar kl.18:00 í Samkomusalnum.
Fundarefni: Aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins.
Léttar veitingar í boði
Félagar fjölmennum!
Aðalstjórn Hauka.
Skokkhópur Almenningsíþróttadeildar Hauka
Almenningsíþróttadeild Hauka stendur fyrir skokkhóp og er hann opinn öllum þeim sem vilja stunda hlaup eða göngur í góðum félagsskap. Mæting er við Íþróttamiðstöð Hauka að Ásvöllum þaðan er skokkað, hlaupið eða gengið allt eftir áhuga og getu hvers og eins.
FORSÍÐA
16.2.2012
2.2.2012
NÚ ER ÞITT AÐ HAFA ÁHRIF.........
Það er mikil ábyrgð að vera í félagskap eins og skokkhópnum okkar. Ábyrgð gangvart sjálfum sér að mæta og vera duglegur. Ábyrgð gagnvart félögunum að vera jákvæður og drífandi. Ábyrgð gagnvart hópnum að byggja hann upp og hafa áhrif.
Nú þegar líður að Aðalfundi er afar mikilvægt að velta fyrir sér þessu síðasttalda. Hvaða leið vil ég að hópurinn fari? Í hvaða átt á svona félgasskapur að vaxa? Hvernig get ég aðstoðað og haft áhrif?
Aðalfundur er málpípa skoðanaskipta. Þar kjósum við stjórnir og leggjum línurnar fyrir næsta ár.
Ég kvet ykkur eindregið til að mæta 7. feb. og hafa áhrif. Kosið verður í stjórn að vanda og þar sem ljóst er að einhverjír úr fráfarandi stjórn gefa ekki kost á sér aftur er brýn þörf á nýju blóði.
Ábyrgðin er semsagt þessi: Mættu á fundinn, komdu þínum skoðunum á framfæri, bjóddu fram krafta þína í stjórn eða annað sem þarf að gera. Fátt er skemmtilegra en að vinna að gefandi verkefnum með bráðskemmtilegu fólki.

ÁBYRGÐIN OG ÁNÆGJAN ER ÞÍN.
1.2.2012
AÐALFUNDUR FRAMUNDAN-------TAKA FRÁ DAGINN STRAX.
Aðalfundur deildarinnar verður 7. febrúar kl. 20:00 að Ásvöllum (forsalur).
Að loknum aðalfundarstörfum verður farið yfir markmið sumarsins og rætt um væntanlega hlaupaferð til Amsterdam í haust.
Sjáumst hress og með vor í hjarta.
Að loknum aðalfundarstörfum verður farið yfir markmið sumarsins og rætt um væntanlega hlaupaferð til Amsterdam í haust.
Sjáumst hress og með vor í hjarta.
27.12.2011
ÁRAMÓTAHLAUP SKOKKHÓPS HAUKA
Almenningshlaup, ætlað öllum sem vilja skokka eða hlaupa í góðum félagsskap á síðasta degi ársins. Einungis er um eina vegalengd að ræða, 10km. Leiðin verður útlistuð nánar rétt fyrir hlaupið en flest þekkið þið leiðina sem Eyglóarhringinn (með fyrirvara um veður þar sem þessi hlaupaleið er ekki öll götulýst). Hlaupið er ókeypis í öllum aldursflokkum.
Hlaupinu er startað frá Ásvöllum um kl. 10:30 á Gamlársdagsmorgun. Flokkarnir eru fjórir: drengir, yngri en 14 ára, - stúlkur, yngri en 14 ára - karlar, 14 ára og eldri, - konur, 14 ára og eldri. Veitt verða verðlaun fyrir fyrsta sæti í hverjum flokki. Tímataka verður í hlaupinu.
Skráning fer fram á www.hlaup.com og líkur forskráningu kl. 20:00 - 30 des.
Sú hefð hefur skapast að fjöldi manns hefur mætt í hinum ýmsu gervum í gegnum tíðina. Þetta gerir hlaupið enn líflegra og skemmtilegra svo fólk er hvatt til að viðhalda hefðinni og skemmta sér og öðrum um leið og það hleypur af sér gamla árið.
Við hvetjum alla til að mæta tímanlega svo klárt sé að öllum skráningum verði lokið í tíma. Við miðum við að byrja skráningar og afhendingu númera upp úr kl. 9:00. og ekki verður skráð í hlaupið eftir kl. 10:00

24.12.2011
***GLEÐILEG JÓL***
Allir þeir sem hlaupa, skokka, ganga nú eða yfirleitt njóta þess að vera til eru margfallt líklegri til þess að stressa sig minna og gleðjast þess meira.....
Gleðileg jól kæru vinir
Anton M.
Gleðileg jól kæru vinir
Anton M.
9.12.2011
Jæja elskurnar,
Nú er alveg að bresta á með jólum. Allir ferskir að hreyfa sig og hlaupa sér til heilsubótar.
Hér eru nokkur atriði sem mér er bæði ljúft og skylt að minnast á:
Anton M.
Nú er alveg að bresta á með jólum. Allir ferskir að hreyfa sig og hlaupa sér til heilsubótar.
Hér eru nokkur atriði sem mér er bæði ljúft og skylt að minnast á:
- Það verður æfing á morgun kl.10:00 eins og vera ber......ekkert betra en að starta helginni með ljúfu hlaupi í jólfærðinni og ekki er félagsskapurinn til að skemma fyrir.
- Allir skrá sig í kaldáarselshlaupið sem haldið er á sunnudaginn kl. 13:00 Stórskemmtilegt 10km hlaup sem endar í miðbæ Hafnarfjarðar. (sjá hlaup.is)
- Vantar þig hlaupadót fyrir veturinn? IronViking félagar verða með opið í höfuðstöðvum IronViking að Hlíðasmára 2 (jarðhæð) laugardaginn á milli klukkan 15:00 og 16:31. þeir erum með frábærar vörur sem eru alveg tilvaldar á ykkur og í jólapakkann. Hver vill t.d. ekki fá sokka frá Compressport í jólagjöf? Þeir bjóða upp á kleinur og verða með heitt á könnunni og endilega kíkið í heimsókn. Compressport:Kálfahlífar, Lærahlífar, Heilhlífar, Þrýstisokkar, íþróttasokkar, hlaupasokkar og hjólasokkarSPIBelt:Hlaupabelti með vösum fyrir smáhlutiPearl Izumi:Hjóla skóhlífar, Merrino ullarsokkar, húfur og vettlingarAir GUN:Loftbyssur og skothylki, til að pumpa í reiðhjóladekkElite:Hjólatrainerar með þráðlausum watt mæli.Fullt af flottum hlaupavörum sem vert er að kíkja á. Allar upplýsingar á heimasíðunni þeirra www.ironviking.is
- Ég minni sérstaklega á mikilvægi þess að nota brodda á hlaupum þessa dagana. Fyrirtækið Stoðtækni í Lækjargötu bíður okkar flottu félögum 15% afslátt af broddunum.
Anton M.
30.11.2011
Nýtt hlaupanámskeið hjá Smart Motion
Ég undirritaður og reyndar margir fleyri hressir hlaupafélagar hafa skellt sér á námskeið hjá Smart Motion með góðum árangri. þetta eru flott námskeið til að læra léttan auðveldan hlaupastíl og minnka álagið á líkamann. Við fáum ofurdíl að venju. Endilega skellið ykkur sem flest en til þess þarf að skár sig með því að senda Hafþóri póst.
kv.
Anton M.
Hlaupanámskeið í Kórnum þriðjudaginn 6. des og langaði mig að bjóða skokkhóp Hauka sama díl og um daginn 50% afslátt á því námskeiði. Væri þú til í að setja þetta á síðuna hjá ykkur og láta fólk í skokkhópnum vita.
Skráning á haffiben@smartmotion.is
kv,
Hafþór Rafn Benediktsson
Skráning á haffiben@smartmotion.is
kv,
Hafþór Rafn Benediktsson